TRAUST OG ÁBYRG ÞJÓNUSTA
Sameignafélagið Aðalmálun var stofnað 1989 af málarameisturunum Kristni Sigurðssyni og Guðmundi Ingvason en synir Kristins Atli Freyr og Óli Jón keyptu hlut Guðmundar 1993 og þar með var fyrirtækið orðið fjölskyldufyrirtæki.
Allt að 20 manns unnu að jafnaði í kringum aldamótin og fjölmargir starfsmenn hafa starfað hjá fyrirtækinu frá upphafi annað hvort sem sumarstarfsmenn og sem fastamenn.
Fyrirtækið býður fjölbreytta þjónustu, húsa viðgerðir, húsamálun, sprautun og lökkun húsganga ofl. Fyrirtækinu var breytt í ehf. í mars 2013.